Haldast eiginleikarnir þrátt fyrir endurnýjun?
Það er ástæða fyrir því að slagorðið okkar er "Sömu gæði, helmingi lægra verð".
Nýlega var óháð rannsókn gerð á eiginleikum endurnýjaðra golfkúlna en rannsakaðir voru allir helstu þættir eins og lengd högga, fluglengd og spuni.
Niðurstöðurnar voru afar jákvæðar en innan við 0.01% munur fannst á nýjum boltum og endurgerðum.
Golfarar finna hinsvegar svo sannarlega fyrir muninum á pyngjunni, því hægt er að spara vel yfir 50% með því að versla við Golfkúlur.is
Rannsóknin var framkvæmd af óháðum og virtum aðila,
Advanced Golf Solutions.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar:
- Óverulegur munur á spuna - (e. spin rate)
- Óverulegur munur á heildarlengd á flugi - (e. total carry)
- Óverulegur munur á - (e. launch angle)
- Lágmarksmunur á - (e. descent angle)
- Óverulegur munur á hámarks lofthæð - (e. apex height)
- Óverulegur munur á sviftíma - (e. float time)
Á myndinni hér fyrir ofan má sjá niðurstöður rannsóknarinnar á meðalhögglengd teighögga, annarsvegar með endurnýjuðum golfkúlum og hinsvegar með nýjum golfkúlum. Eins og sést er munurinn afar lítill.